Sótthreinsun fyrir skóla og leikskóla
Í skólum og leikskólum eru mörg rými í daglegri notkun og mikill fjöldi barna, starfsfólks og gesta fer þar um. Sanondaf sinnir faglegri sótthreinsun og sérhreinsun á kennslustofum, leikrýmum, matsölum, snyrtingum og sameiginlegum svæðum, meðal annars eftir veikindi eða þegar sérstök þörf kemur upp. Við tökum bæði að okkur afmörkuð verkefni og umfangsmeiri sérhreinsun eftir þörfum hvers skóla eða leikskóla.
Algeng þjónustusvæði í skólum og leikskólum
-
Kennslustofur og leikrými -
Gangar og önnur sameiginleg svæði -
Matsalir og eldhúsaðstaða -
Snyrtingar og búningsaðstaða -
Íþrótta- og fjölnotasalir
-
Bókasöfn og námsrými -
Starfsmannaaðstaða -
Rými sem þurfa sérstaka sótthreinsun eða alhreinsun
Mygluþrif í skólum og leikskólum
Ef mygla hefur komið upp í skóla eða leikskóla getur þurft sérhæfða hreinsun á viðkomandi rými, innbúi og öðrum hlutum sem tengjast verkefninu. Sanondaf sinnir mygluþrifum í kennslustofum, leikrýmum, geymslum, snyrtingum og öðrum svæðum eftir umfangi og aðstæðum hverju sinni.
Umfang mygluþrifa er metið út frá aðstæðum hverju sinni og farið yfir hvaða rými, innbú eða aðra hluti þarf að hreinsa sem hluta af verkefninu. .
Framkvæmd utan skólatíma
Við getum unnið síðdegis, um helgar eða í skólafríum eftir því hvað hentar starfseminni best. Fyrir stærri verkefni er hægt að skipta framkvæmdinni í áfanga, til dæmis eftir byggingum, deildum eða rýmum, svo auðveldara sé að halda starfseminni gangandi meðan á verkinu stendur.
