Þjónusta fyrir heimili - mygla, raki og sótthreinsun

Sanondaf sérhæfir sig í mygluþrifum fyrir heimili og aðstoðar þegar mygla hefur komið upp eða grunur er um rakavandamál.  Það er ekki alltaf auðvelt að vita hvert næsta skref eigi að vera og því leggjum við áherslu á persónulega þjónustu, skýr svör og lausn sem hentar aðstæðum hverju sinni. Eftir þörfum getum við einnig sinnt sótthreinsun, ástandsskoðun og mygluprófum og ráðlagt um framhaldið.

Fagmaður í mygluþrifi

Algeng verkefni á heimilum


  • Mygla á baðherbergjum, í svefnherbergjum, við glugga eða í geymslum
  • Raki eða rakalykt í þvottahúsum, kjöllurum eða öðrum rýmum
  • Sótthreinsun heimilis eftir veikindi
  • Mygluþrif þegar mygla hefur komið upp á heimili
  • Ástandsskoðun eða myglupróf þegar óvissa er um raka eða myglu


Ef þú ert ekki viss um hvort þörf sé á mygluþrifum, sótthreinsun, ástandsskoðun eða mygluprófi getum við hjálpað þér að meta hvað hentar miðað við aðstæður á heimilinu.

Skýr og persónuleg þjónusta

Þegar þú hefur samband förum við yfir aðstæður, hvaða vandamál hafa komið upp og hvaða þjónusta hentar best. Þú færð skýrar upplýsingar um framkvæmdina, næstu skref og hvað þarf að hafa í huga eftir verkið.


Það er ekki alltaf augljóst hvort vandinn tengist raka, myglu eða hvort þörf sé á sótthreinsun. Við metum hvert tilfelli fyrir sig og ráðleggjum hvort næsta skref sé skoðun, prófun, hreinsun eða önnur viðeigandi þjónusta.