Algengar spurningar

Hér finnur þú svör við algengum spurningum um mygluþrif, sótthreinsung, ástandsskoðun, mygluprof og þjónustu Sanondaf.

Finnur þú ekki svar við spurningunni þinni? Hringdu í okkur og við hjálpum þér beint.

Sanondaf fagmaður við mygluþrif
  • Hvernig veit ég hvort þetta sé mygla?

    Mygla getur birst sem blettir, rakalykt eða óþægindi í ákveðnum rýmum. Ef þú ert óviss getum við metið aðstæður og skoðað með þér næstu skref.

  • Hver er munurinn á mygluþrifum og sótthreinsun?

    Mygluþrif miða að því að hreinsa myglu og þau svæði þar sem raki eða mygluummerki hafa komið fram. Sótthreinsun miðar að því að draga úr smitálagi á snertiflötum og að dauðhreinsa húsnæðið.

  • Hver er munurinn á þrifum og sótthreinsun?

    Þrif fjarlægja óhreinindi, ryk og bletti. Sótthreinsun miðar að því að draga úr smitálagi á snertiflötum og í rýmum. Nær undantekingulaust er best að þrífa fyrst og sótthreinsa síðan.

  • Hversu fljótt getið þið komið?

    Það fer eftir staðsetningu og umfangi. Við reynum að svara hratt og finna næsta mögulega tíma.


  • Er óhætt að vera heima á meðan verki stendur?

    Það fer eftir tegund verkefnis og aðstæðum. Við förum yfir það með þér áður en framkvæmd hefst.

  • Þjónustið þið heimili?

    Já. Aðaláhersla Sanondaf er á mygluþrif og sótthreinsun fyrir heimili og fjölskyldur.

  • Þjónustið þið fyrirtæki og stofnanir?

    Já. Við þjónustum meðal annars fyrirtæki, skóla, veitingastaði, hótel, matvælafyrirtæki og heilbrigðisrými.

  • Hvað kostar þjónustan?

    Verð fer eftir stærð rýmis, umfangi, staðsetningu og tegund þjónustu. Sendu okkur upplýsingar og við metum verkefnið.

  • Get ég sent myndir?

    Já. Myndir geta hjálpað okkur að meta aðstæður hraðar og gefa betri fyrstu ráðleggingar.

  • Hvað er þjónustusvæði Sanondaf?

    Við þjónustum Reykjavík og höfuðborgarsvæðið, Vesturland, Suðurland og Suðurnes.

  • Er Sanondaf hluti af alþjóðlegri þjónustu?

    Já. Sanondaf er hluti af alþjóðlegri sótthreinsunarþjónustu og vinnur eftir viðurkenndum stöðlum og faglegum verkferlum.