Hreinsun og sótthreinsun fyrir matvælafyrirtæki
Í matvælaframleiðslu og vinnslu geta komið upp verkefni sem kalla á ítarlegri hreinsun en daglegt þrifakerfi nær yfir. Sanondaf sinnir sérhæfðri hreinsun og sótthreinsun í framleiðslu-, vinnslu-, pökkunar- og geymslurýmum og getur einnig komið að mygluhreingerningum, hreinsun eftir mengunaratvikum og öðrum sérverkefnum. Umfang og framkvæmd eru alltaf skipulögð með starfsemi fyrirtækisins í huga.
Algeng þjónustusvæði í matvælafyrirtækjum
-
Framleiðslu- og vinnslurými -
Pökkunar- og frágangssvæði -
Atvinnueldhús og undirbúningsrými -
Kælar, frystar og geymslur -
Lager- og móttökusvæði -
Starfsmannaaðstaða og sameiginleg rými -
Svæði sem þurfa alhreinsun, sótthreinsun eða aðra sérhæfða hreinsun
Skipulögð framkvæmd með reksturinn í huga
Á
ður en vinna hefst förum við yfir verkefnið með ábyrgðaraðila og skilgreinum hvaða svæði þarf að hreinsa, hvert umfangið er og hvenær best er að framkvæma verkið. Stærri hreinsunarverkefni er hægt að skipuleggja utan framleiðslutíma eða vinna í áföngum þannig að sem minnst röskun verði á daglegum rekstri.
Að framkvæmd lokinni förum við yfir verkið með tengilið fyrirtækisins og tryggjum að skýrt sé hvað hefur verið gert og hvaða næstu skref eiga við.
Þegar þarf meira en dagleg þrif
Í framleiðslu- og vinnsluumhverfi geta komið upp aðstæður þar sem hefðbundin dagleg þrif duga ekki. Það getur til dæmis verið vegna uppsöfnunar óhreininda, mengunaratviks, raka eða myglu, eða þegar ákveðið svæði þarf ítarlega hreinsun áður en það er tekið aftur í notkun.
Sanondaf getur komið inn í afmörkuð sérverkefni eða umfangsmeiri alhreinsun og skipulagt framkvæmdina í samráði við ábyrgðaraðila fyrirtækisins. Við leggjum áherslu á vandaða framkvæmd og að verkið falli sem best að starfseminni.
